|
| |
| Vefverslun köfunarskólans er í vinnslu. En við viljum benda á að hægt er að skoða vöruúrvalið í vörulistanum Annars hvetjum við alla til að koma og skoða úrvalið í köfunarbúðinni á Grandagarði 14 |
|
|
|
Tilbođ mánađs |
|
| KÖFUNARSKÓLINN s: 7705030    
Minnum á landsins mesta úrval af köfunarvörum í verslun okkar.
|
|
Nýlegar Fréttir |
|
Njóttu reynslunar,- lćrđu ađ kafa án fyrirhafnar. Leigđu búnađ ţó svo ađ ţú kunnir ekki á ţurrbúning.
Í köfunarferð sem farinn var á bátnum um daginn enduðu þáttakendur með köfun í 13°c hita. Hitinn var svo mikill á þátttakendum að margir hverjir rifu af sér hanskana til að kæla sig niður og hugmynd kviknaði. Í yfirbyggðum bát við þetta hita stig væri ekki úr vegi að njóta þeirra margvíslegu kosta sem blautbúningar hafa við köfun. Og þegar það eru kostir,- hví þá ekki að leyfa nemendum að njóta þess til fullnustu. Ný gerð neoprenefnis sem er afar teygjanlegt og býr yfir meiri einangrun gerir líka þennan kost enn ákjósanlegri. Eitt af helstu vandamálunum við að læra að kafa á íslandi er þurrbúningurinn. Að koma úr sundlaugartíma þar sem ekki er notast við þurrbúninga yfir i það að kafa í þurrbúning úti í nátturunni eru mikil viðbrigði.  Til að komast á móts við nemendur og auka gæði kennslunnar hefur Köfunarskólinn.is ákveðið að kaupa inn og notast við nýja tegund Semi-Dry "hálf-þurrbúninga". Þetta gerir það að verkum að nemendur skólans njóta þess besta í laugartímum, þ.e.a.s halda góðum hita á líkamanum í kyrrstöðuæfingum og eru einnig í búnaðnum sem notast er við í sjó. Þegar svo er farið í fyrstu tvær kafanirnar úti í sjó þá er breytingin enginn á búningnum og fólk svífur úr lauginni yfir í umhverfi sjávar og vatna án vandkvæða. Eftir að hafa tekið fyrstu tvær kafanirnar í sjó og notast við blautbúning meta kennari og nemandi það saman hvort námskeiðið skuli klárað í blautbúning eða haldið áfram og stefnan tekinn á að klára kafanirnar sem koma á eftir í þurrbúning. Tekið skal framm að nemendum býst enþá að taka allar kafanir námskeiða í þurrbúning,- kjósi þeir það. Þetta fyrirkomulag er til mikilla hagsbóta fyrir nemendur en það er ekki..... Lesa Meira... |
Magnađur sími til sölu..
Magnús Már Hrafnsson nemandi í Open Water fræðunum var fyrir því óhappi eftir köfunarferð að á leið sinni frá bát uppá bryggju datt síminn hans úr vasanum. Þetta var í nóvember og tekið var að skyggja. Síminn skoppaði á þrepunum og féll að lokum í hafið með skvampi sem vakti athygli hinna kafaranna. Þrátt fyrir að ekki væri líklegt að um líflegan síma væri að ræða eftir þetta ágæta bað, ákvað Matthías Bjarnason kennari að kafa niður og sækja líkamlegar leifar símans. Niðri var hið fínasta skyggni og höfninn kraumaði af lífi, krabbar, marhnútar , sprettfiskar og ufsatorfur héldu Matta selskap á meðan skimað var eftir símanum.
Lesa Meira... |
DATAMASK HUD....
Vertu með nauðsynlegar upplýsingar ávalt í augnsýn..... Datamask Head Up Display eða HUD, er græjan sem beðið hefur verið eftir.
 Gríma sem hefur innbyggða eina af fullkomnustu köfunartölvum heimsins og þráðlausan sendi sem sendir upplýsingar um stöðu mettunar og þrýstings á kút beint til kafara. Kafarinn hefur svo upplýsingarnar í augsýn og getur einbeitt sér að því að njóta köfunarinnar hvort sem hann er í einfaldri köfun eða að stunda flóknari verk eins og t.d myndbands og myndatökur.. Lesa Meira... |
Nýr Köfunarbátur
Köfunarskólinn.is hefur fest kaup á Sóma 800 Köfunarbát til að koma á móts við þarfir okkar kafara til að kanna hafsbotninn undan strandana. Báturinn er búinn 230 hestafla Volvo Penta sem skilar okkur á um 20 mílna hraða á áfanga stað og hann tekur með þægilegu móti allt að 12 kafara. Núna er búið að setja bólfæri á nokkra þekkta köfunarstaði en reglulega er farið í könnunarleiðangra í flök og forvitnilega staði. Nemendur okkar njóta þess besta við köfunarferðir sínar. Sendu tölvuskeyti á kofun@kofunarskólinn.is og óskaðu eftir að vera sett/ settur á póstlistan yfir bátaferðir á vegum skólans. Lesa Meira... |
Ný Ţjónusta Msn & Ţjónustukerfi.....
 Nú geta kafarar á fengið aukna þjónustu inn til sín beint gegnum tölvuna. Msn vaktin hjálpar nemendum og viðskiptavinum að hafa samband við vakthafandi starfsmann. kofunarskolinn@hotmail.com Einnig er komið umfangsmikið kerfi sem heldur utan um nemendur og framgang þeirra á námskeiðum. Með kerfinu fá nemendur upplýsingar um væntanlega tíma og skipuleggja námsframgang eftir eigin höfði og sníða námið að sínum þörfum. Köfunarskólinn sér um sína. Lestu nánar um þetta í þessum pistli. Lesa Meira... |
Hnýđingar í Garđinum
Núna er rétti tímin til að fara að kafa í Garðinum á Suðurnesjum. Það er allt kraumandi af lífi þar og ekki ólíklegt að þú sjáir Hnýðinga, Beinhákarl eða Ufsatorfur sem eru engu líkar. Lesa Meira... |
11 ára afmćli Nitrox á íslandi fagnađ međ komu nýrrar pressu....
Köfunarskólinn.is hefur frá árinu 1995 blandað nitrox með hlutaþrýsingsaðferðinni sem felur í sér að hækka hlutfall súrefnis í andrúmslofti með því að bæta 100% súrefni við andrúmsloft. Aðferðinn hefur haft orspor áhættu enda er meðhöndulun súrefnis einungis hættulítil viti menn hvað þeir eru að gera og hafi til þess Nitrox Mixer Blender réttindi líkt og hefur verið fyrir hendi í Köfunarskólanum. Lesa Meira... |
Bókasafn Kafara

Loksins Loksins .............. Langþráð bókasafn þar sem kafarar geta nálgast bækur um áhugamálið sitt er orðið að veruleika. Kofunarskólinn hefur hafið útlán á bókum sem tengjast köfun. Skáldsögur, kennslubækur fræðslubækur og fleiri bækur sem koma áhugamálinu þínu við eru nú til láns og leigu. Kíktu inn á Tengilinn Bókasafnið og kynntu þér málið.
Lesa Meira... |
Félagar SKFÍ dýrmćtasta eign félagsins.
Án Sportkafara væri lítill tilgangur í að halda úti Sportkafarafélagi. Það er því brýnt að fara í félags ferðir og óvissuferð félagsins sem farinn var á dögunum var enginn undan tekning nema hvað köfunarbúnaðurinn varð eftir heima !!!! en ekkert að óttast þessi ferð var frábær og góð tilbreyting í reglulegum ferðum Sportkafarafélagsins.
Lesa Meira... |
Mögnuđ Vestmannaeyjaferđ frammundan !!!!
Sportkafarafélag Íslands Stendur fyrir árlegri Vestmannaeyjaferð dagana 21.júlí til 23.júlí. Þeir sem mæta eiga von á miklu enda hefur á undanförnum árum bæst í áhugaverðar kafanir á þessum slóðum en að þessu sinni standa upp úr „Kolkrabba köfun“ í Kaplagjótu og Nýjir Neðansjávardrangar sem vert er að skoða. Ekki má gleyma “klósettinu” neðansjávar göngum sem kafara sogast í gegnum með straumi og fleiri áhugaverðum stöðum sem ekki hafa verið skoðaðir lengi. Lesa Meira... |
|
|
|
| |
Skráđu ţig á póstlistann okkar
|
|
|
|